162 products
Sort by:
162 products
Bonding Advanced Repairing Shampoo
Repairing – Strengthening – Remove Calcium – Damaged Hair
Öflugt viðgerðasjampó fyrir skemmt hár. Hefur tvöfalda virkni. Það vinnur á móti uppsöfnuðu kalsíum sem ræðst á viðkvæmt eða aflitað hár og gerir hárið lint og líflaust. Það endurbyggir einnig keratíntengslin í hárinu og vinnur þannig að auknum styrk að innan. Hárið verður mjúkt og viðráðanlegt og fær aukinn gljáa og líf.
- Hreinsar varlega hár og hársvörð
- Styrkir hárið
- Hjálpar til við að minnka hárbrot og dauft yfirbragð hársins.
- Gerir við hárið frá innsta kjarna þess
- Súlfat Free
Forsjampó
Hair Treatment - Pre Shampoo - Repairing - Antibreakage - Strengthen - Remove Calcium
Umbreyting í einni notkun – snýr við sýnilegum skemmdum.
Skref 1 - ACTIVATE REPAIR
Þetta fyrir-sjampó vinnur djúpt og lagar hárskemmdir á öllum stigum fyrir allar hárgerðir. Með því að bera formeðferðina í blautt hár áður en sjampóið er notað getum við hámarkað að virku innihaldsefnin komist inní hárið fyrir öfluga viðgerð.
Formúlan inniheldur faglegan styrk af hreinni 3% sítrónusýru og 5% glýsín sem virka bæði á ytra og innra lagi hársins með tíþvætta virkni til að afkalka hárið og hjálpa til við að gera við viðvarandi skemmdir verulega. Formúlan smýgur djúpt inn í hárið til að losa það við ofskömmtun kalsíums, snúa við stífleika og daufleika, og hjálpar um leið til við að endurtengja slitin tengsl milli keratínkeðja.
Fyrir vikið verður hárið sterkara, heilbrigðara og glansandi - eins og það hafi verið endurnýjað.
Forsjampóið er gel formúla og freyðir ekki og er ekki ætlað til að koma í staðinn fyrir venjulegt sjampó.
NOTKUN
Skref 1 - ACTIVATE REPAIR
Berið ríkulega í lengd hársins og nuddið í gegnum hárið.
Látið bíða í 5. mín. Ekki skola.
Forsjampóið er gel formúla og freyðir ekki.
Skref 2 - CLEANSE & REPAIR
Eftir 5.mín berið beint yfir Première Bain / sjampó, nuddið vel fyrir ríkulega froðu og skolið.
Skref 3 - CONDITION & REPAIR
Fylgdu eftir með Première Fondant / næringunni eða hármaskanum.
Skref 4 - PROTECT & REPAIR
Berið Repairing Anti-Frizz Filler Serumið í lengd hársins í handklæðaþerrað hárið til að vernda það gegn skemmdum og hita allt að 230°C*, blásið hárið.
Til að klára Première rútínuna skaltu setja 1- 2 dropa af Intensive Shine Repairing Oil í rakt eða þurrt hár til að næra lengdina og klofna hárenda.
* Hámarkaðu árangur þinn með krafti lagskiptingar “ Layering Tækni”
Athugið: Þetta forsjampó notast ekki eitt og sér heldur í meðferðaplani með Premiére sjampó.
ELIXIR ULTIME - MÝKRA OG GLANSANDI HÁR
Milt sjampó fyrir allar hárgerðir þó sérstaklega þá sem vilja aukinn glans og lífleika í hárið með hinni nærandi Marula olíu sem er mjög andoxandi og gefur hárinu nauðsýnlegar fitursýrur til að næra það ásamt Omega 9 og C & D vítmínum. Lúxusformúla sem fjarlægir óhreinindi eins og umhverfisþætti sem endurnýjar og nærir hárið ásamt að gefa því fallegan glans.
- Marula Oil: Mjög andoxandi, nauðsynlegar fitusýrur ásamt Amino sýrum sem halda hárinu mjúku og vel nærðu.
- Camellia Oil: Framúrskarandi mýkjandi olía til að halda raka í og sveigjanleika í hárinu. Hún frásogast mjög fljótt og skilur eftir ótrúlegan glans.
- Argan Oil: Mikið innihald andoxunarefna, nauðsynlegra fitusýra og E-vítamína, til að auka mýkt, styrk og næringu.
DISCIPLINE - HÁRLÍNA FYRIR GRÓFT, ÚFIÐ, LIÐAÐ OG KRULLAÐ HÁR
Sjampó fyrir allar hárgerðir þó sérstaklega úfið, rafmagnað, liðað & krullað. Gefur hárinu léttleika og mjúka hreyfingu, stjórnun og flæði. Hárið verður meðfærilegt. Sulfate frítt.
- MORPHO-KERATINE™ COMPLEX:
- Morpho-Constituing Agents + Surface-Morphing Polymers: Endurnýjar eiginleika hárstrásins og umlykur það svo auðveldara sé að hemja hárið.
- Surface Perfector: Gerir hárið mjúkt og auðveldar að losa um flóka.
- High Precision Care Agent: Endurnýjar hárið. Þyngdarlaus áhrif.
DENSIFIQUE - EYKUR ÞYKKT OG RÚMMÁL HÁRSINS
Herrasjampó til daglegra nota sem inniheldur bíótín sem eykur hárgæði, þykkingu og glans. Hárið verður sjáanlega þéttara og heilbrigðara. Veitir léttleikatilfinningu í hársverði.
- Texturizing polymers: Auka samstundis þvermál hársins.
- Biotin: Bætir hárgæði Með því að styrkja og bæta vaxtarumhverfi í hársekk. Auka samstundis þéttleika í hártrefjum.
Djúphreinsandi sjampó sem hreinsar allar leifar af stílvörum varlega úr hárinu og hársverðinum.
Sjampóið inniheldur bláberjafræolíu og açaí-þykkni, sem eru rík af C-vítamíni, andoxunarefnum og steinefnum, og hjálpa til við að næra og vernda hárið. Þrátt fyrir djúphreinsandi eiginleika er sjampóið nógu milt til daglegrar notkunar, þökk sé lágu pH-gildi og mildum hreinsiefnum.
- Djúphreinsandi sjampó
- Fjarlægir allar mótunarvörur
- Bláberjafræolía og Acai þykkni
- C-vítamín, andoxunarefni og steinefni
- Hægt að nota á hverjum degi
- Lágt PH gildi
- Milt
- Vegan
The Dude 24:7 er milt sjampó, sérstaklega hannað til daglegrar nota.
Sjampóið er samsett með Plant Keratin Complex og jógúrtpróteinum sem vinna saman að því að endurnýja raka, næra hárið og styrkja það.
Formúlan hjálpar hárinu að verða sterkara, silkimjúkt og auðvelt í meðhöndlun.
Helstu kostir:
- Mild hreinsun fyrir daglega notkun
- Gefur raka og nærir hárið
- Styrkir hárið og bætir mýkt
DENSIFIQUE - EYKUR ÞYKKT OG RÚMMÁL HÁRSINS
Sjampó fyrir normal – fíngert hár sem þarf þykkingu. Bætir áferð, þéttleika og styrk hársins. Hárið endurnýjast og verður sterkara með meiri fyllingu.
- Hyaluronic Acid: vandaðar aminosýrur sem gefa hárinu fyllingu og koma í veg fyrir að hárið brotni með því að gefa góðan raka..
- Gluco-Peptide: fer inní dýpsta lag hársins til að styrkja núverandi hártrefjar.
- Ceramides: Eykur glans, stuðlar að mýkt og rakagjöf og hjálpar til við að styrkja hárið
Ný og uppfærð formúla með innblástur frá húðhumhirðu.
Revitalising youth shampoo for hair weakened by signs of ageing.
Lúxus “youth” sjampó fyrir hár sem sýnir merki um öldrun.
Endurnærandi sjampó sem er sérstaklega hannað fyrir hár sem hefur misst mýkt, fyllingu og glans með tímanum. Það hentar vel þegar hárið sýnir merki um öldrun,eins og þurrk, slappleika, frizz og skort á þéttleika.
Formúlan er auðguð með öflugum innihaldsefnum úr húðvörum, þar á meðal hýalúrónsýru og Abyssine, sem hjálpa til við að veita djúpan raka, styrkja hárþráðinn og bæta ásýnd hársins.
Sjampóið hreinsar hárið á mildan en áhrifaríkan hátt og skapar hreinan grunn fyrir frekari umhirðu. Á sama tíma hjálpar það til við að vernda hárið og hársvörðinn gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum, svo hárið haldi ferskleika sínum og lífskrafti.
Hárið verður mýkra, fyllra og viðráðanlegra, með heilbrigðari og fallegri ásýnd.
• Allt að 97% minna hárbrot*
• Allt að 75% meiri næring í hárinu*
• 90% upplifa hreinni og ferskari hársvörð **
Létt gel-áferð breytist í ríkulega froðu sem umvefur hárið og hreinsar það án þess að þyngja.
Einkennandi ilmur Chronologiste – með nótum af bergamot, rós og patchouli umbreytir daglegri umhirðu í sannkallaða lúxus.
Rétt eins og húðin er hárið sýnilegur þáttur í því hvernig við upplifum aldur og vellíðan. Þegar hárið missir mýkt, fyllingu og glans getur það haft áhrif á heildarútlit og sjálfstraust.
5 merki um öldrun hárs
Kérastase hefur skilgreint helstu einkenni öldrunar í hári:
• Frizz og óviðráðanleg áferð
• Slappleiki og skortur á glans
• Minni þéttleiki
• Skortur á fyllingu
• Tap á mýkt og lífskrafti
Til að bregðast við þessum þáttum hefur Kérastase þróað markvissa umhirðu sem vinnur á þessum einkennum samtímis.
Línan inniheldur meðal annars nýstárlegt næturserum, sem vinnur á hárinu yfir nótt og hjálpar til við að bæta ásýnd þess, styrkja hárþráðinn og styðja við mýkt, fyllingu og glans.
Fyrir þurrt hár fíngert - normal.
Dry hair shampoo - Dry Hair - Nourishing - Moisturising
Milt rakagefandi kremsjampó fyrir þurrt hár. Formúlan er próteinauðguð og hreinsar á áhrifaríkan hátt þurrt hár ásamt að gefa glans, mýkt og styrk.
- Lífgar og styrkir, og berst gegn því að hárið þorni og missi raka
- Endurheimtir hárþykkt og glans
- Gefur hárinu meiri uppbyggingu og styrk
Exclusively for you.
Four travel-sized remedies for jet lag, tension, dry skin, and summer stress.
