70 products
70 products
Repair línan er sérstaklega þróuð til að gefa þurru, skemmdu og efnameðhöndluðu hári nýtt líf.
Þetta nærandi sjampó styrkir hárið, bætir teygjanleika og endurheimtir náttúrulegan glans, án þess að þyngja hárið.
Vönduð formúla sem hreinsar hárið á mildan hátt og gefur góðan djúpan raka og hjálpar til við að endurbyggja hárið.
Útkoman er mjúk, sveigjanlegt og glansandi hár.
Helstu kostir:
- Hreinsar hárið á áhrifaríkan en mildan hátt
- Veitir hári og hársvörð raka með nærandi krækiberjafræolíu og macadamíuolíu
- Endurbyggir og styrkir hárið með vegan próteini úr vatnsrofinni hveitipróteini sem fyllir upp í skemmdir í ytra lagi hársins
- Inniheldur verndandi andoxunarefni og E-vítamín
- Bætir teygjanleika hársins með nærandi macadamíuolíu
- Vegan formúla og án parabena
Motion Care styður við heilbrigt hár í hraðskreiðu og virku daglegu lífi fyrir aukinn raka og umhirðu sérstaklega við tíðan hárþvott.
Þessi djúpvirka og nærandi hárnæring hjálpar til við að leysa flóka svo auðvelt sé að greiða hárið, styrkir það og skilur það eftir létt, mjúkt og meðfærilegt – án þess að þyngja.
Létt en áhrifarík formúlan veitir djúpvirkan raka og er auðguð með sjávarplöntuþykkni, sem hjálpar til við að vernda hárið gegn ytra álagi og viðhalda litstyrk. Hún inniheldur einnig endurbyggjandi plöntukeratín, uppbyggingarefni hársins, sem styður við heilbrigt, mjúkt og glansandi hár.
Ilmurinn er ferskur og hressandi með keim af grænu tei og sítrus.
Helstu eiginleikar:
- Rakagefandi og nærandi
- Hentar til daglegrar notkunar
- Inniheldur róandi menthyl lactate sem veitir kælandi tilfinningu
- Súlfatlaus og parabenalaus formúla
- Vegan
Motion Care styður við heilbrigt hár í hraðskreiðu og virku daglegu lífi fyrir aukinn rka og umhirðu sérstaklega við tíðan hárþvott.
Þetta nærandi og milda sjampó hreinsar hárið varlega og hjálpar til við að fyrirbyggja skemmdir sem geta myndast við daglega notkun.
Rakagefandi formúlan er auðguð með þangi / sjávarplöntuþykkni, sem hjálpar til við að vernda hárið gegn ytra álagi og viðhalda lit og ljóma. Að auki hefur sjampóið kælandi og róandi áhrif á hársvörðinn, sem stuðlar að heilbrigðu og sterku hári frá rót til enda.
Ilmurinn er ferskur og hressandi með keim af grænu tei og sítrus.
Helstu eiginleikar:
- Rakagefandi og nærandi
- Hentar til daglegrar notkunar
- Inniheldur róandi menthyl lactate sem veitir kælandi tilfinningu
- Fyrir þá sem eru á ferðinni og vilja ferskt, heilbrigt og vel nært hár.
- Styður við heilbrigt hár í hraðskreiðu og virku daglegu lífi.
- Sílíkónlaus og parabenalaus formúla
- Vegan
Fullkomnar þrjár vörur fyrir þurrt hár sem þarfnast aukins raka, mýktar og næringar.
Waterclouds Moisturizing Kit er rakagefandi þrenna sem hjálpar til við að lífga upp á þurrt og meðhöndlað hár og endurheimta raka, mýkt og náttúrulegan glans.
Vörurnar vinna saman að því að gefa hárinu raka og styrk frá rót til enda. Nærandi innihaldsefni hjálpa til við að verja hárið gegn þurrki og utanaðkomandi álagi og skilja það eftir mjúkt, glansandi og heilbrigt á að líta.
Í settinu færðu sjampó frítt með.
Settið inniheldur:
Moist Shampoo 250 ml
Milt og rakagefandi sjampó sem styrkir þurrt og skemmt hár, dregur úr úfnu hári og gefur aukna mýkt og náttúrulegan glans. Inniheldur nærandi sólblómafræolíu, styrkjandi AC Plant Keratin og rakagefandi panthenol.
Moist Conditioner 200 ml
Rakagefandi hárnæring sem veitir raka bæði á yfirborði og inn í hárið og hjálpar til við að skapa góðar aðstæður fyrir sterkara, heilbrigðara og glansmeira hár. Inniheldur sólblómafræolíu, AC Plant Keratin og panthenol sem næra, styrkja og hjálpa hárinu að viðhalda raka.
Moist Hair Serum 50 ml
Létt leave-in serum sem gefur raka, dregur úr úfnu hári og eykur glans. Serumið veitir jafnframt hitavörn, hjálpar til við að verja hárið gegn utanaðkomandi álagi og viðhalda lit í lituðu hári. Inniheldur glycerín, sodium hyaluronate og hydrolyzed quinoa sem gefa raka, styrkja hárið og bæta mýkt og glans.
Má nota bæði í þurrt og rakt hár.
Gefðu þurru og meðhöndluðu hári aukinn raka, mýkt og fallegan glans með Waterclouds Moist.
Fullkomnar þrjár vörur fyrir fíngert og líflaust hár sem þarfnast aukinnar fyllingar, styrks og rúmmáls.
Waterclouds Volumizing Kit er rúmmálsgefandi þrenna sem vinnur saman að því að byggja upp fyllingu frá rótum, styrkja hárið og bæta teygjanleika þess.
Vörurnar innihalda náttúruleg virk innihaldsefni sem hjálpa til við að örva blóðflæði í hársverði og styrkja hársekkina. Útkoman er fyllra og þykkara hár með langvarandi rúmmáli.
Í settinu færðu Intensive Volume Treatment 150 ml að gjöf.
Settið inniheldur:
Volume Shampoo 250 ml
Rúmmálsgefandi sjampó sem hreinsar hárið mildilega um leið og það styrkir hárið, örvar hársvörðinn og gefur langvarandi fyllingu. Formúlan er auðguð með þörungakjarna og hveitipróteinum sem hjálpa til við að vernda og styrkja hárið og bæta teygjanleika þess. Hárið verður sterkara, fyllra og þykkara.
Volume Conditioner 200 ml
Mýkjandi og rúmmálsgefandi hárnæring með náttúrulegum innihaldsefnum sem næra og styrkja hárið. Gefur hárinu létta og loftmikla áferð ásamt aukinni fyllingu sem endist yfir daginn.
Intensive Volume Treatment 150 ml – GJÖF
Fjölvirkt leave-in sprey sem gefur hárinu aukið rúmmál, dregur úr úfnu hári og auðveldar mótun. Spreyið gefur raka, greiðir úr flækjum og veitir vörn gegn bæði hita og UV-geislum. Hárið verður sterkara og meðfærilegra með aukinni fyllingu og fallegum glans.
Gefðu fíngerðu og líflausu hári aukinn styrk, fyllingu og langvarandi rúmmál með Waterclouds Volume.
Fullkomnar þrjár vörur fyrir herramenn sem vilja góða umhirðu fyrir húð, hár og rakstur.
The Dude Shave & Shower Kit inniheldur þrjár vörur sem sjá um raksturinn frá upphafi til enda ásamt fjölnota hreinsivöru fyrir hár og líkama.
Allar vörurnar eru með fágaðan, karlmannlegan ilm með krydduðum tónum, jasmínu og sandelviði.
Settið inniheldur:
After Shave Face Balm 50 ml
Rakagefandi after shave balm sem róar og mýkir húðina eftir rakstur. Inniheldur einiberjakjarna og vítamín sem hjálpa til við að skilja húðina eftir mjúka og fríska.
Shave Cream 100 ml - GJÖF
Ríkulegt raksturskrem sem myndar mjúka froðu og veitir gott rennsli fyrir þéttan og þægilegan rakstur. Inniheldur einiberjakjarna og hafþyrnisolíu sem hjálpa til við að róa og næra húðina.
Hair & Body Wash 250 ml
Þægileg 2-in-1 hreinsivara fyrir bæði hár og líkama. Inniheldur nærandi macadamia- og sætmöndluolíu sem hjálpa til við að viðhalda raka og skilja húð og hár eftir mjúkt.
Stór paddle-bursti með þægilegu og vinnuvistvænu handfangi. Fjölhæfur bursti sem hentar vel til að greiða úr flækjum, slétta og móta hárið og er sérstaklega hentugur fyrir lengra og þykkara hár.
Reviving Curl Cream kremið veitir þér stjórn á krullunum og skilur þær eftir mjúkar, skilgreindar og án frizz og úfnings.
Það er einnig fullkomið til að hressa upp á krullur án hárþurrku, svo þær haldist léttar og náttúrulegar.
Formúlan inniheldur bambus, Provitamin B5 og hrísgrjónaprótein, sem hjálpa til við að styrkja hárið, auka teygjanleika krullna og vernda gegn þurrki.
Kremið inniheldur einnig hitavörn fyrir örugga mótun.
Hentar bæði í stutt og sítt hár.
Texture Fiber Cream er mótunkrem með trefjum sem gefur hárinu skilgreiningu, fyllingu og miðlungshald.
Kremið skapar náttúrulega útkomu á sama tíma og það veitir stjórn og sveigjanleika, svo greiðslan haldist mótanleg allan daginn.
Formúlan inniheldur Panthenol (B5) og hydrolyzed wheat protein sem gef hárinu raka, styrkja það og auka skilgreiningu.
Gjafasett fyrir ljóshærða
Eleven Australia gjafasett með sjampói, Keep My Colour meðferð og Miracle Treatment spreyi, allt í fallegri snyrtitösku💛
