156 products
Sort by:
156 products
Burstinn hjálpar til við að losa dauðar húðfrumur, vöruleifar og óhreinindi, á sama tíma og hann örvar blóðflæði í hársverði og styður við heilbrigðan hárvöxt.
Hann er fullkominn til að nota með Relieve Shampoo og Relieve Scalp Treatment, þar sem hann eykur virkni innihaldsefna og gerir hárumhirðuna enn áhrifaríkari.
Mjúkir silikon-tindar gera burstann hentugan fyrir viðkvæman hársvörð og til daglega notkunar án ertingar.
Relieve línan er þróuð til að næra bæði hár og hársvörð og hentar sérstaklega vel fyrir þá sem glíma við flösu, kláða og önnur vandamál í hársverði.
Þetta rakagefandi og róandi serum er sérstaklega ætlað fyrir þurran, kláðasaman og viðkvæman hársvörð.
Serumið inniheldur Xpertmoist® og Seascalp™ biomarine complex, sem hjálpa til við að róa, jafna og veita hársvörðinum djúpvirkan raka, á sama tíma og það vinnur gegn þurrki og flögnun.
Létt og olíulaus formúlan þyngir ekki hárið og skilur hársvörðinn eftir mjúkan, rakaðan og lausann við ertingu og ójafnvægi.
Helstu eiginleikar:
-
Gefur raka og róar þurran og viðkvæman hársvörð
- Dregur úr þurrki, flögnun og kláða
- llmefnalaus formúla – hentar viðkvæmri húð
- Vegan, ilmefnalaus og parabenalaus
Relieve línan er þróuð til að næra bæði hár og hársvörð og hentar sérstaklega vel fyrir þá sem glíma við flösu, kláða og ójafnvægi í hársverði.
Þessi rakagefandi næring er rík af Seascalp™ biomarine complex, Xpertmoist® og Inula, sem róar, verndar og veita djúpvirkan raka.
Formúlan hjálpar til við að fyrirbyggja þurrk og veitir hársverði jafnvægi, á sama tíma og hún styrkir hárstráið og verndar hárið gegn ofþornun og ytra álagi.
Niðurstaðan er mjúkt, heilbrigt hár með fallegum glans.
Ilmurinn er ferskur og hreinn með keim af bergamót, nerólí og musk.
Helstu eiginleikar:
- Gefur raka og verndar bæði hár & hársvörð
- Hjálpar við að gefa hárinu raka og venda gegn þurrk og flösu
- Styrkir hárstráið og styður við heilbrigðan hársvörð
- Eykur glans og skilur hárið eftir mjúkt og glansandi
- Verndar litinn
- Vegan og parabenalaus formúla
Relieve línan er þróuð til að næra bæði hár og hársvörð og hentar sérstaklega vel fyrir þá sem glíma við flösu, kláða og önnur vandamál í hársverði.
Þetta flösusjampó meðhöndlar og dregur úr ójafnvægi í hársverði á sama tíma og það fyrirbyggir þurrk og ertingu.
Formúlan vinnur markvisst gegn flögnun, kláða og ertingu og er rík af Seascalp™ biomarine complex, Xpertmoist® og Inula.
Niðurstaðan er hreint, heilbrigt hár með mjúka áferð og heilbrigður hársvörður í jafnvægi.
Ilmurinn er ferskur og hreinn með keim af bergamót, nerólí og musk.
Helstu eiginleikar:
- Meðhöndlar og dregur úr flösu og vandamálum í hársverði
- Fyrirbyggir þurrk og kláða
- Inniheldur aloe vera sem gefur raka og róar
- Inniheldur mentól sem örvar blóðflæði í hársverðinum
- Verndar litinn
- Vegan og parabenalaus formúla
Þetta súlfatlausa sjampó inniheldur öfluga blöndu af Seascalp™ biomarine complex, Xpertmoist® og Inula, sem veitir djúpvirkan raka og langvarandi vernd.
Sjampóið hreinsar hár og hársvörð á áhrifaríkan en mildan hátt án þess að þurrka hárið, hjálpar til við að jafna og endurheimta heilbrigðan hársvörð, og skilur hárið eftir létt, mjúkt og með náttúrulegan glans.
Létt formúlan verndar hárstráið og byggir glans smám saman upp.
Ilmurinn er ferskur og hreinn með keim af bergamót, nerólí og musk.
Helstu eiginleikar:
- Mild og áhrifarík hreinsun án súlfata
- Dregur úr flösu og róar vandamál í hársverði
- Verndar og styrkir hárstráið
- Skilur hárið eftir mjúkt, heilbrigt og glansandi
- Veitir djúpan raka og hjálpar til við að varðveita lit
- Vegan og parabenalaus formúla
Finnst þér hárið oft dauft og líflaust þrátt fyrir hárþvott, eða glímir þú við kláða og ójafnvægi í hársverði?
Þetta djúphreinsandi detox sjampó er sérstaklega þróað til að leysa upp og fjarlægja dauðar húðfrumur, olíu og uppsafnaðar vöruleifar úr bæði hári og hársverði.
Sjampóið skapar ferskt og jafnvægið umhverfi fyrir heilbrigt hár, með náttúrulegum innihaldsefnum sem flaga varlega, endurlífga og rakagefa hársvörðinn fyrir hreina og langvarandi ferska tilfinningu.
Helstu eiginleikar:
- Leysir upp og fjarlægir vöruleifar, óhreinindi og óæskileg uppsöfnun
- Stuðlar að heilbrigðara jafnvægi í hársverðinum
- Skilur hársvörðinn eftir hreinan, ferskan og endurnýjaðan
- Engin þörf á öðru sjampói í sama hárþvotti
- Má nota 1x í viku ef þú notar mikið af mótunarvörum, annars dugar á 2–3 vikna fresti
- Sílíkónlaus, parabenalaus og vegan
Mjög létt leave in sprey fyrir hársvörðinn sem dregur úr hárfalli og broti um 97%* fyrir fyllingu og þéttara hár.
Hentar öllum hárgerðum, einnig fyrir fíngert og þunnt hár.
Mjög létt leave-in sprey til daglegra nota sem með tímanum veitir hárinu meiri fyllingu og sýnilegri þéttleika. Hjálpar að draga úr hárlosi og broti, á sama tíma og hársvörðurinn nær jafnvægi til að skapa kjöraðstæður fyrir heilbrigt hár til að dafna.
- 97% sannað að dragi úr hárlosi og broti
- 87% eru sammála um að hárið líti út fyrir að vera þykkara**
- 84% eru sammála um að hárið viriðist sterkara**
- Umbúðir unnar úr endurunnu gleri
Scalp línan inniheldur ilmmeðferðablöndu af lavender, tetré og bergamot sem lætur hvern dag líða eins og spa-dagur. Þessi frískandi nýi ilmur er unninn úr náttúrulegum olíum til að mæta þörfum hársvarðarins.
** Byggt á niðurstöðum óháðrar könnunar á einstaklingum
100ml
Mjúkur hárskrúbbur sem hreinsar varlega dauðar húðflögur, þurrk, flösu,umfram olíur ásamt vöruuppsöfnun til að fríska uppá hársvörðinn.
Léttur forskrúbbur með argan skeljadufti sem skrúbbar varlega dauðar húðflögur, umfram olíur, flögnun, ásamt vöruuppsöfnun sem geta haft neikvæð áhrif á hársvörðinn & hárheilsu með tímanum.
Veitir dýpri hreinsun en með sjampói eitt og sér. Afhjúpar þannig mýkri, sléttari hársvörð og heilbrigt og líflegt hár.
125ml
Róandi meðferðaskot fyrir viðkvæman hársvörð.
Öflug 4 vikna meðferð sem róar, verndar og endurheimtir jafnvægi hársvarðarins.
Róandi og endurnærandi meðferð sem veitir tafarlausa bót við óþægindum eins og kláða, sviða og roða.
Hún gefur raka og næringu, endurheimtir teygjanleika og gæði hársvarðarins og býr til heilbrigðara umhverfi fyrir sterkari hárvöxt.
Helstu ávinningar
- Veitir tafarlausa léttir frá kláða, sviða og ertingu.
- Endurheimtir teygjanleika, gæði og jafnvægi hársvarðar
- Stuðlar að endurnýjun, raka og náttúrulegri vörn húðarinnar
- Ver gegn oxunarálagi og sindurefnum
- Skapar kjöraðstæður fyrir sterkari og heilbrigðari hárvöxt.
- Hárið verður létt, mjúkt, glansandi og sveigjanlegt
- Létt og skilur hárið ekki eftir fitugt.
Fullkomin 4 vikna kúr þegar hársvörðurinn bregst illa við streitu, árstíðabreytingum eða eftir mikla mótun og hitameðferðir.
Viðkvæmur hársvörður getur verið merki um streitu, loftslagsbreytingar, mengun, of mikla hitanotkun eða efnaálag.
Cure Apaisante hjálpar til við að endurheimta jafnvægi húðarinnar og styrkir náttúrulegt varnarlag hennar, svo hárið vaxi í heilbrigðara og næringarríkara umhverfi.
Formúlan byggir á sameiningu náttúrunnar og vísindanna: Rhamnose sem styrkir frumur, Moringa og E-vítamín sem verja gegn oxunarálagi – og mildri, rakagefandi áferð sem róar strax við fyrstu notkun.
10 stk x 6ml
Hársvarðadropar fyrir þurran hársvörð
Dry Scalp Serum - Healthy scalp - Revitalising- Hydrating
Verndar jafnvægi hársvarðarins, minnkar þurrk og óþægindi.
Hársvarðarserum sem er sérstaklega hannað til að bæta upp rakaskort í hársverði, sem er ein algengasta orsök kláða, flögnunar og óþæginda.
Minnkar óþægindi, létt, róandi formúlan dregur úr spennu og ertingu í hársverðinum.
Með reglulegri notkun heldur hársvörðurinn heilbrigði, sem leggur grunninn að fallegra, sterkara og mýkra hári.
Af hverju er þetta mikilvægt?
-
Heilbrigt hár byrjar alltaf í heilbrigðum hársverði, alveg eins og sterkt tré þarf næringarríkan jarðveg.
-
Margir huga að hárinu sjálfu með sjampói og næringu, en gleyma hársverðinum sem stjórnar bæði hárvexti og ástandi hársins.
-
Þurrkur í hársverði getur leitt til flögnunar, kláða, aukins hármissis og veikari hársekkja.
-
Með því að nota serúm sérstaklega ætlað hársverðinum færðu:
✔ Betra jafnvægi í hársverð
✔ Aukinn styrk í hári
✔ Fyrirbyggjandi umönnun gegn þurrki, hármissi og óþægindum
Exclusively for you.
Four travel-sized remedies for jet lag, tension, dry skin, and summer stress.
