697 products
Sort by:
697 products
Scalp Balancing sjampóið og hárnæringin er mild en öflug tvenna sem hreinsar hársvörðinn til að draga úr sýnileika flögumyndunar, fitu, og óhreininda á meðan það róar óþægindi í hársverði. Skilur hárið eftir mjúkt og hársvörðinn ferskan og í janfvægi.
Lúxus hárnæringin inniheldur innihaldsefni sem eru innblásin af húðumhirðu, þar á meðal milda skrúbbandi salisýlsýru og róandi níasínamíð. Blanda af argan, jojoba og ólífuolíu veitir næringu og raka, sem gerir hárið mýkra, meðfærilegra og glansandi. Hentar fyrir þurran og feitan hársvörð.
Botanical Therapy Blend aðstoðar við að draga úr óþægindum, verndar og stuðlar að heilbrigðu umhverfi í hársverðinum til að auðvelda hárvöxt.
- 88% tóku eftir minni flögumyndun og uppbyggingu óhreininda*
- 91% tóku eftir auknum raka í hársverði*
- 84% eru sammála um að dregið hafi úr óþægindum í hársverði**
Scalp línan inniheldur ilmmeðferðablöndu af lavender, tetré og bergamot sem lætur hvern dag líða eins og spa-dagur. Þessi frískandi nýi ilmur er unninn úr náttúrulegum olíum til að mæta þörfum hársvarðarins.
*Byggt á niðurstöðum óháðrar rannsóknar á rannsóknar stofu
** Byggt á niðurstöðum óháðrar könnunar á einstaklingum.
Scalp Balancing sjampóið og hárnæringin er mild en öflug tvenna sem hreinsar hársvörðinn til að draga úr sýnileika flösu, fitu, og óhreininda á meðan það róar óþægindi í hársverði.
Skilur hárið eftir mjúkt og hársvörðinn ferskan og í jafnvægi ásamt að minnka roða.
Samsett með öflugri blöndu af innihaldsefnum sem innblásin eru af húðumhirðu – þar á meðal milda skrúbbandi salisýlsýru og róandi níasínamíð – þetta hreinsandi sjampó gefur hárinu hámarks raka fyrir hár & hársvörð ásamt að skilja hárþræðina eftir mjúka.
Hentar fyrir feitan og þurra hársvörð.
Ferskur hárilmur með blóma- og ávaxtatónum sem gefur raka.
Nýja hármistið er hannað sem lokaskref í hárumhirðu. Þetta er léttur ilmur með fíngerðum tónum af pæoníu, garðablómi og plómu. Mistið gefu raka án þess að þyngja hárið.
Þessi ilmur er dásamlegur.
- Gefur raka og frískar upp á hárið
- Fíngerður blóma- og ávaxtailmur af pæoníu, garðablómi og plómu
- Létt formúla sem klístrast ekki
- Fullkomið lokaskref í daglegri hárumhirðu
- 100% vegan
Maria Nila kynnir með stolti Floral Drift Hair Mist, létt og rakagefandi hármist, þróað í samstarfi við hið heimsþekkta franska ilmhús Robertet Group – meistarar náttúrulegra innihaldsefna og ilmlistar síðan 1850.
Þetta einstaka hármist inniheldur ilm sem var sérstaklega hannaður af Jérôme Epinette, sem hefur skapað ilmi fyrir virt merki á borð við Byredo, Atelier Cologne, Frapin og Olfactive Studio. Hann er víða þekktur fyrir hæfileikann til að skapa einstaka og heillandi ilmi.
Wonder Brush burstarnir frá HH Simonsen eru hannaðir til að fara vel með hárið og hársvörðinn. Sérstakir SmartFlex pinnarnir eru mjög sveigjanlegir og koma í veg fyrir að hárið brotni og endar klofni.
Þetta er hárbursti sem ætti að vera til á öllum heimilum og hentar öllum aldurshópum. Hvort sem hárið er stutt eða sítt, hrokkið eða slétt þá er burstinn einstakur. Wonder Brush hentar mjög vel til að greiða bæði blautt og þurrt hár.
Miracle & Texture Duo. Kraftaverka tvenna sem inniheldur Eleven Miracle Hair Treatment djúpnæringu 300ml og Eleven Miracle I Want Body Texture Spray 200ml. Tvennan
gefur hárinu djúpa næringu og fallega áferð, hárið fær einnig raka, styrk og uppbyggingu án þess að hárið þyngist. Hentar öllum hárgerðum einnig lituðu hári þar sem þao sér til þess
að liturinn endist lengur.
Reviving Curl Cream kremið veitir þér stjórn á krullunum og skilur þær eftir mjúkar, skilgreindar og án frizz og úfnings.
Það er einnig fullkomið til að hressa upp á krullur án hárþurrku, svo þær haldist léttar og náttúrulegar.
Formúlan inniheldur bambus, Provitamin B5 og hrísgrjónaprótein, sem hjálpa til við að styrkja hárið, auka teygjanleika krullna og vernda gegn þurrki.
Kremið inniheldur einnig hitavörn fyrir örugga mótun.
Hentar bæði í stutt og sítt hár.
Exclusively for you.
Four travel-sized remedies for jet lag, tension, dry skin, and summer stress.
