697 products
Sort by:
697 products
Motion Care er þróað fyrir virkan lífsstíl og daglega umhirðu.
Þessi létta og rakagefandi mist dregst hratt inní hárið og nærir bæði hár og húð með langvarandi raka.
Fullkomið í ræktartöskuna eða þegar hárið þarfnast fljótlegrar endurnæringar yfir daginn.
Formúlan er auðguð með traustum rakagefandi innihaldsefnum á borð við hýalúrónsýru, aloe vera, glýserín og panthenol, sem vinna saman að því að veita djúpvirkan og varanlegan raka.
Hárið verður ferskara, mýkra og meðfærilegra, án þess að verða þungt og flatt.
Ilmurinn er ferskur og hressandi með keim af grænu tei og sítrus.
Hristið flöskuna. Spreyjið í blautt eða þurrt hár, með áherslu á lengdina - útí enda.
Greiðið í gegn og mótið hárið eins og venjulega.
Helstu eiginleikar:
- Raka gefandi og nærandi
- Inniheldur hýalúrónsýru, aloe vera, glýserín og panthenol
- Með róandi aloe vera
- Sílíkónlaus, súlfatlaus og parabenalaus formúla
- Vegan
Motion Care styður við heilbrigt hár í hraðskreiðu og virku daglegu lífi fyrir aukinn raka og umhirðu sérstaklega við tíðan hárþvott.
Þessi djúpvirka og nærandi hárnæring hjálpar til við að leysa flóka svo auðvelt sé að greiða hárið, styrkir það og skilur það eftir létt, mjúkt og meðfærilegt – án þess að þyngja.
Létt en áhrifarík formúlan veitir djúpvirkan raka og er auðguð með sjávarplöntuþykkni, sem hjálpar til við að vernda hárið gegn ytra álagi og viðhalda litstyrk. Hún inniheldur einnig endurbyggjandi plöntukeratín, uppbyggingarefni hársins, sem styður við heilbrigt, mjúkt og glansandi hár.
Ilmurinn er ferskur og hressandi með keim af grænu tei og sítrus.
Helstu eiginleikar:
- Rakagefandi og nærandi
- Hentar til daglegrar notkunar
- Inniheldur róandi menthyl lactate sem veitir kælandi tilfinningu
- Súlfatlaus og parabenalaus formúla
- Vegan
Motion Care styður við heilbrigt hár í hraðskreiðu og virku daglegu lífi fyrir aukinn rka og umhirðu sérstaklega við tíðan hárþvott.
Þetta nærandi og milda sjampó hreinsar hárið varlega og hjálpar til við að fyrirbyggja skemmdir sem geta myndast við daglega notkun.
Rakagefandi formúlan er auðguð með þangi / sjávarplöntuþykkni, sem hjálpar til við að vernda hárið gegn ytra álagi og viðhalda lit og ljóma. Að auki hefur sjampóið kælandi og róandi áhrif á hársvörðinn, sem stuðlar að heilbrigðu og sterku hári frá rót til enda.
Ilmurinn er ferskur og hressandi með keim af grænu tei og sítrus.
Helstu eiginleikar:
- Rakagefandi og nærandi
- Hentar til daglegrar notkunar
- Inniheldur róandi menthyl lactate sem veitir kælandi tilfinningu
- Fyrir þá sem eru á ferðinni og vilja ferskt, heilbrigt og vel nært hár.
- Styður við heilbrigt hár í hraðskreiðu og virku daglegu lífi.
- Sílíkónlaus og parabenalaus formúla
- Vegan
Þessi létta og nærandi hárolía dregst hratt inn í hárið án þess að þyngja það.
Formúlan inniheldur fjórara rakagefandi og mýkjandi olíur.
Camellia oil, Macadamia Nut Oil, Sunflower Oil og Argan oil sem veita hárinu fallegan glans, mýkt og silkimjúka áferð.
Olían er einnig rík af nauðsynlegum vítamínum sem hjálpa til við að styrkja hárið og vernda það gegn skemmdum, bæði í daglegri umhirðu og við mótun.
Setjið lítið magn í lófann og berið í rakt eða þurrt hár, sérstaklega í lengdir og enda. Mótið hárið að vild.Helstu eiginleikar:
- Létt hárolía
- Inniheldur fjórar rakagefandi olíur: kamellíu-, macadamíu-, sólblóma- og arganolíu
- Gefur fallegan glans og mjúka áferð
- Rík af vítamínum, m.a. A-, B- og E-vítamínum
- Vegan og parabenalaus formúla
Moist línan er sérstaklega þróuð til að veita styrk og djúpan raka fyrir þurrt og meðhöndlað hár.
Þessi rakagefandi og nærandi hármaski inniheldur vandlega valin innihaldsefni sem veita mikinn raka, næringu og vernd, fyrir sterkt, silkimjúkt hár með náttúrulegum glans.
Helstu eiginleikar:
- Veitir djúpan og langvarandi raka fyrir þurrt og brothætt hár
- Nærir, mýkir og hjálpar til við að fyrirbyggja skemmdir
- Lokar raka inn í hárið fyrir betri rakajafnvægi
- Vegan og parabenalaus formúla
250ml
Moist línan er sérstaklega þróuð til að veita styrk og djúpan raka fyrir þurrt, meðhöndlað og viðkvæmt hár.
Þessi næring gefur góðan raka, sem skapar kjöraðstæður fyrir sterkt, heilbrigt og glansandi hár.
Formúlan hjálpar til við að draga úr frizz, eykur glans og skilur hárið eftir mjúkt og meðfærilegt án þess að þyngja það.
Helstu eiginleikar:
- Fyrirbyggir frizzý og úfið hár og eykur glans
- Veitir raka bæði djúpt og á yfirborði hársins
- Inniheldur sólblómafræolíu og endurbyggjandi AC Plant Keratin
- Með Panthenol (B5) sem jafnar rakastig og eykur glans
- Vegan og parabenalaus formúla
Moist línan er sérstaklega þróuð til að veita styrk og djúpan raka fyrir þurrt meðhöndlað og viðkvæmt hár.
Þetta milda sjampó inniheldur nærandi innihaldsefni sem skilja hárið eftir mjúkt, sveigjanlegt og glansandi – án þess að þyngja.
Helstu kostir:
• Rakagefur og styrkir þurrt og skemmt hár
• Dregur úr frizzi og eykur glans
• Inniheldur sólblómafræolíu og enduruppbyggjandi AC Plant Keratin
• Með Panthenol (B5) sem jafnar rakastig hársins og eykur mýkt
• Vegan
• Ilmur af bergamót, rós og musk
Finnst þér hárið oft dauft og líflaust þrátt fyrir hárþvott, eða glímir þú við kláða og ójafnvægi í hársverði?
Þetta djúphreinsandi detox sjampó er sérstaklega þróað til að leysa upp og fjarlægja dauðar húðfrumur, olíu og uppsafnaðar vöruleifar úr bæði hári og hársverði.
Sjampóið skapar ferskt og jafnvægið umhverfi fyrir heilbrigt hár, með náttúrulegum innihaldsefnum sem flaga varlega, endurlífga og rakagefa hársvörðinn fyrir hreina og langvarandi ferska tilfinningu.
Helstu eiginleikar:
- Leysir upp og fjarlægir vöruleifar, óhreinindi og óæskileg uppsöfnun
- Stuðlar að heilbrigðara jafnvægi í hársverðinum
- Skilur hársvörðinn eftir hreinan, ferskan og endurnýjaðan
- Engin þörf á öðru sjampói í sama hárþvotti
- Má nota 1x í viku ef þú notar mikið af mótunarvörum, annars dugar á 2–3 vikna fresti
- Sílíkónlaus, parabenalaus og vegan
Color-línan er sérstaklega hönnuð til að vernda og hlúa að lituðu hári til að halda litadýpt og glans
Intensive Color Treatment er þægilegt leave-in sprey sem er sérstaklega þróað fyrir litað hár.
Hún býr yfir 12 fjölhæfum eiginleikum sem gera hárið meðfærilegra á sama tíma og hún nærir, gefur raka og dregur úr úfning.
Hjálpar einnig til við að varðveita litarefni hársins þannig að liturinn haldist djúpur og glansandi lengur.
Með bæði hitavörn 130°C og UV-vörn sem vernda hárið gegn ytra álagi og hjálpar til við að viðhalda náttúrulegum glans.
Helstu eiginleikar:
- Varðveitir litarefni fyrir langvarandi og djúpan hárlit
- Dregur úr úfing og auðveldar greiðslur
- Skilur hárið eftir mjúkt og glansandi
- Nærir og gefur góðan raka
- Verndar með UV- og hitavörn
- Vegan og án parabena
150ml
Color-línan er sérstaklega hönnuð til að vernda og hlúa að lituðu hári til að halda litadýpt og glans.
Mild litaverndandi næring sem inniheldur náttúruleg innihaldsefni sem styrkja og örva keratínþræði hársins og hjálpa til við að viðhalda litstyrk lengur.
Niðurstaðan er mjúkt, heilbrigt hár með auknum glans og mýkt.
Helstu eiginleikar:
- Verndar og viðheldur hárlit
- Gefur raka, mýkt og aukinn glans
- Dregur úr skemmdum af völdum hárþvotta og mótunar
- Inniheldur hafþyrni og Sea Care sem næra hárið og auka glans
- Vegan og án parabena
Exclusively for you.
Four travel-sized remedies for jet lag, tension, dry skin, and summer stress.
