17 products
17 products
MOMO gjafasett – raki, mýkt og gljái
Fallegt gjafasett fyrir þurrt hár sem þarfnast aukins raka. MOMO vörurnar hjálpa til við að gera hárið mýkra, glansandi og meðfærilegra.
MOMO sjampóið hreinsar hárið og veitir því raka, en hárnæringin mýkir það og auðveldar að greiða úr flækjum. MOMO Serum fullkomnar umhirðuna með léttri rakagjöf og hitavörn. Serumið er látið vera í hárinu og þarf ekki að skola það úr.
Fyrir hvern hentar settið?
Settið hentar sérstaklega vel fyrir þurrt, matt eða hrjúft hár sem skortir mýkt og raka, hvort sem það er slétt, liðað eða krullað.
Settið inniheldur:
-
MOMO Shampoo 250 ml
-
MOMO Conditioner 250 ml
-
MOMO Serum 150 ml
Tilvalin gjöf fyrir þann sem vill dekra við hárið sitt með rakagefandi umhirðu frá Davines.
Discover Davines – uppgötvaðu nýjar uppáhaldsvörur
Fallegt gjafasett með fjórum Davines vörum í handhægum stærðum. Tilvalið til að kynnast vörumerkinu, taka með í ferðalag eða gleðja einhvern sem vill dekra við hárið sitt.
Settið hentar sérstaklega vel fyrir úfið og óstýrilátt hár sem þarfnast mýktar og sléttari áferðar. LOVE Smoothing sjampóið og hárnæringin mynda grunn að umhirðunni, en OI Milk og Beautiful Things Leave-in Mask bjóða upp á viðbótarumhirðu eftir þvott.
Discover Davines Kit inniheldur:
- LOVE Smoothing Shampoo 75ml
- LOVE Smoothing Conditioner 75ml
- OI Milk 50ml
- Beautiful Things Leave-in Mask 40ml
Lítil lúxusgjöf fyrir fallegra og meðfærilegra hár
NOUNOU Kit inniheldur:
- NOUNOU Shampoo 250ml
- NOUNOU Conditioner 250ml
- OI Oil 50ml
Fyrir hvern hentar NOUNOU gjafasettið?
NOUNOU gjafasettið er sérstaklega góður kostur fyrir þurrt og viðkvæmt hár sem hefur verið aflitað, lýst með strípum eða farið í aðra efnameðferð. Það hentar vel þegar hárið þarfnast aukinnar næringar og mýktar og erfitt er að greiða úr því.
NOUNOU sjampóið og hárnæringin næra hárið og auðvelda að greiða úr flækjum. OI Oil fullkomnar umhirðuna með því að auka gljáa og mýkt og draga úr úfnu hári.
Falleg gjöf fyrir þann sem vill dekra við hárið sitt og gera það mýkra, glansandi og meðfærilegra.
NATURALTECH Kit inniheldur:
Nourishing Shampoo 250ml
Nourishing sjampó er einstaklega nærandi sjampó sem hreinsar hárið og hársvörð á mildan hátt.
Nourishing Conditioner 250ml
Nourishing Vegetarian Miracle hárnæringin er rakagefandi hárnæring sem hentar vel fyrir viðkvæmt og brothætt hár.
Liquid Spell 125ml
Liquid Spell er silkimjúk froða sem styrkir, þéttir og gefur fallega lyftingu sem endist lengi. Hægt er að nota Liquid Spell eitt og sér eða blanda við aðrar vörur frá Davines og við það magnast upp eiginleikar hverrar vöru fyrir sig. Hentar vel fyrir viðkvæmt eða fíngert hár.
K18 ferðasettið er hin fullkomna lausn til að halda hárinu heilbrigðu, sterku og vernduðu á ferðalögum. Settið kemur í þægilegum ferðastærðum sem passa auðveldlega í handtaskana, ferðatöskuna eða íþróttatöskuna.
Hvað inniheldur settið?
-
Molecular Repair Leave-In Hair Mask (15 ml): Klínískt prófuð skolið-ekki-úr hármeðferð sem notar einkaleyfisvarða K18PEPTIDE™ tækni til að gera við skemmdir af völdum bleikingar, litar, efnameðferða og hita á aðeins 4 mínútum. Endurbyggir keratinkeðjur hársins, eykur teygjanleika og gerir hárið sterkara.
-
HeatBounce Hitavörn (47 ml): Léttur og öflugur hitavarnarúði sem verndar hárið gegn hitaskemmdum við mótun með hárblásara eða sléttujárni, á sama tíma og hann heldur hárinu mjúku og viðráðanlegu.
-
Molecular Repair Hair Oil (10 ml): Nærandi og styrkjandi hárolía sem vinnur á skemmdum á sameindastigi, temur úfingu (frizz), lokar klofnum endum og veitir spegilsléttan glans án þess að þyngja hárið.
Fyrir hvern er settið ætlað? Settið hentar öllum hárgerðum og er sérstaklega hannað fyrir þá sem eru á ferðinni og vilja heildstæða hárviðgerð, hitavörn og glans í einum pakka.
Helstu kostir:
-
Gjörbyltir og gerir við skemmt hár á sameindastigi á 4 mínútum.
-
Veitir öfluga hitavörn og koma í veg fyrir skemmdir við mótun.
-
Temur úfingu (frizz) og gefur dásamlegan glans.
-
Þægilegar ferðastærðir sem auðvelt er að taka með sér hvert sem er.
-
Cruelty-Free (ekki prófað á dýrum), vegan og öruggt fyrir litað hár.
K18 Holiday Duo gjafasettið sameinar öfluga viðgerð fyrir skemmt hár og létta hreinsun sem gefur hárinu ferskleika, fyllingu og lyftingu. Fullkomin tvenna fyrir sterkara og heilbrigðara hár.
Hvað inniheldur settið?
-
K18 Leave-In Molecular Repair Hair Mask, 50 ml: Leave-in meðferð með K18PEPTIDE™ sem hjálpar til við að gera við skemmdir af völdum aflitunar, hárlitunar, efnameðferða og hita. Meðferðin virkar á aðeins fjórum mínútum og skilur hárið eftir sterkara, mýkra og meðfærilegra.
-
K18 AirWash Dry Shampoo, 47 ml: Létt þurrsjampó sem dregur samstundis úr umframfitu og óæskilegri lykt án þess að skilja eftir hvítar leifar. Gefur hárinu ferskleika, fyllingu og létta lyftingu.
Fyrir hverja er settið?
Settið hentar öllum hárgerðum og er sérstaklega góður kostur fyrir skemmt, efnameðhöndlað eða líflaust hár sem þarf á viðgerð, styrk og auknum ferskleika að halda.
Helstu kostir:
- Hjálpar til við að gera við skemmt hár.
- Gefur hárinu meiri fyllingu og lyftingu.
- Skilur hárið eftir sterkara, mýkra og meðfærilegra.
- Hentar lituðu hári.
- Vegan og cruelty-free.
- Fallegt gjafasett í takmörkuðu upplagi.
ATH KASSAR AÐEINS ÆTLAÐ KÉRASTASÉ STOFUM
Takmarkað upplag af lúxus setti með Nutritive 8H Magic Night Serum í fullri stærð og ferðastærð.
Fyrir allar hárgerðir.
Rakagefandi næturmeðferð fyrir þurrt hár sem nærir og mýkir hárið yfir nótt.
Kemur bæði í 90ml og 30ml
- Virkar í allt að 8 klukkustundir yfir nóttina, líkt og “næturkrem” fyrir húðina – nema fyrir hárið.
- Hentar öllum hárgerðum, en sérstaklega þurru hári sem þarfnast auka umönnunar.
- Hjálpar til við að vernda gegn núningi frá koddaverum ásamt léttri áferð sem skilur ekki eftir sig olíukennda tilfinningu eða bletti á kodda
Þegar þú vaknar er hárið mýkra, sléttara og auðveldara að greiða.
Ver hárið gegn frizzi og óæskilegu umfangi sem verður af núningsálagi frá koddanum.
Endurnærir hárið yfir nóttina – styrkur, mýkt og glans
Showing 17/17
Gjafasett fyrir ljóshærða
Eleven Australia gjafasett með sjampói, Keep My Colour meðferð og Miracle Treatment spreyi, allt í fallegri snyrtitösku💛
