290 products
290 products
Lúxusdekur sem gleður um hátíðarnar 🎁
Holiday Joys Moroccan Mint Tea er fallegt gjafasett sem sameinar hina einstöku Moroccanoil Treatment og nærandi varasalva sem gefur vörunum gegnsæjan, náttúrulegan glans með ferskum myntukeim. Fullkomið sem lítil jólagjöf, í pakkaleikinn eða einfaldlega sem dekur fyrir sjálfa þig.
Í settinu eru:
Moroccanoil Treatment 15ml - fylgir frítt með
Hin einstaka hárolía sem er frumkvöðull arganolíu í hárumhirðu. Fjölnota meðferð sem nærir og mýkir hárið, bætir áferð þess og gefur fallegan glans.
Lip Balm Moroccan Mint Tea 15 ml
Hágæða varasalvi innblásinn af húðvöruformúlum sem inniheldur arganolíu, argansmjör og peptíð ásamt hýalúrónsýru sem veitir samstundis langvarandi raka og næringu án þess að skilja eftir klístraða tilfinningu.
✨ Dásamlegt hátíðarsett fyrir hár og varir.
Lúxusdekur sem gleður um hátíðarnar 🎁
Holiday Joys Vanilla Date er fallegt gjafasett sem sameinar hina einstöku Moroccanoil Treatment og nærandi varasalva með hlýjum og ljúfum "pinky nude" tón með hlýju og sætu bragði.Fullkomið sem lítil jólagjöf í pakkaleikinn eða einfaldlega sem dekur fyrir sjálfa þig.
Í settinu eru:
Moroccanoil Treatment 15 ml - fylgir frítt með
Hin einstaka hárolía sem er frumkvöðull arganolíu í hárumhirðu. Fjölnota meðferð sem nærir og mýkir hárið, bætir áferð þess og gefur fallegan glans.
Lip Balm Vanilla Date 15 ml
Hágæða varasalvi sem er innblásinn af húðvöru formúlu sem inniheldur arganolíu, argansmjör og peptíð ásamt hýalúrónsýru sem veitir samstundis langvarandi raka og næringu án þess að skila eftir klístraða tilfiningu.
✨ Dásamlegt hátíðsett fyrir hár og varir.
Gefðu úfnu eða frizzý hári mýkt og stjórn.
Holiday Radiance Frizz Control er glæsilegt jólagjafasett í takmörkuðu upplagi, sérstaklega sett saman fyrir hár sem á það til að verða frizzý og bregðast við raka í lofti. Vörurnar hjálpa til við að slétta hárið, auka meðfærileika og halda úfningi í skefjum fyrir fallega, silkimjúka áferð.
Gjafasettið er á 25% lægra verði en samanlagt verðmæti varanna.
Í settinu eru:
Frizz Control Shampoo 250 ml
Milt sjampó sem hreinsar hárið um leið og það hjálpar til við að draga úr úfningi og gera hárið sléttara og meðfærilegra.
Frizz Control Conditioner 250 ml
Mýkjandi næring sem hjálpar til við að næra, slétta og temja úfið hár án þess að þyngja það.
Frizz Shield Spray 50 ml
Léttur úði sem hjálpar til við að verja hárið gegn raka í lofti, draga úr úfningi og viðhalda sléttri og fallegri áferð.
Smoothing Lotion 75 ml
Létt mótunarkrem sem mýkir og sléttir hárið, temur frizzý hár og gefur því fallega áferð og náttúrulegan glans.
✨ Fullkomið sett fyrir silkimjúkt, slétt og meðfærilegt hár í glæsilegu limited-edition Holiday Radiance gjafaboxi.
Holiday Radiance er glæsilegt jólagjafasett í takmörkuðu upplagi, sett saman fyrir hár sem þarfnast aukinn raka og umhirðu.
Settið inniheldur fjórar Moroccanoil vörur sem vinna saman að því að næra hárið, gefa því mýkt og fallegan glans, allt í einstaklega fallegu limited-edition gjafaboxi sem gerir settið að fullkominni jólagjöf 🎁
Gjafasettið er á 25% lægra verði en samanlagt verðmæti varanna.
Í settinu eru:
-
Hydrating Shampoo 250 ml
Rakagefandi sjampó sem hreinsar hárið mildilega og hjálpar til við að viðhalda rakajafnvægi þess. -
Hydrating Conditioner 250 ml
Rakagefandi næring sem mýkir, nærir og gerir hárið auðveldara í meðförum. -
Moroccanoil Treatment 25 ml
Hin einstaka og heimsþekkta hárolía sem er frumkvöðull arganolíu fyrir hárið. Fjölnota meðferð sem nærir og mýkir hárið, bætir áferð þess og gefur því einstakan glans.
-
Intense Hydrating Mask 75 ml
Djúpnærandi rakamaski fyrir hár sem þarfnast aukins raka, mýktar og umhirðu.
✨ Fjórar dásamlegar Moroccanoil vörur í einu einstaklega fallegu gjafasetti – tilbúið undir jólatréð.
Curl Cream er krullukrem sem mótar hárið með sterku haldi. Kremið veitir öflugan raka og mótar hárið án þess að þyngja það og heldur úfnu hári í skefjum. Ekki þarf að skola kremið úr hárinu. Inniheldur sólblómafræ og er ríkt af E-vítamíni og sítrónusýru sem jafnar hárbyggingu, bætir gljáa og bindur raka.
Yfirnáttúrulegur úði, breytir öllum gerðum hárs í slétt og glansandi hár.
Ofurléttur mótunarúði sem hleðst ekki utan á hárið, þyngir það eða gerir það fitugt. Mýkir hárið samstundis, umbreytir áferð, bætir við yfirnáttúrulegum glans og inniheldur vatnshelda formúlu sem hjúpar hvert hárstrá og ver hárið gegn raka og dregur þannig úr ýfing eða að hárið krullist.
Formúlan inniheldur öfluga rakavörn sem endist í 3-4 þvotta, mælt er því að nota Dream Coat í þriðja/fjórða hverjum hárþvotti til að viðhalda virkni.
Varan inniheldur hitavörn, er súlfat-laus, paraben-laus, ekki prófuð á dýrum, glúten-laus og vegan.
Chris Appleton og Color Wow Money Laundering sjampó er hreinsandi sjampó sem fjarlægir óhreinindi, fitu og uppsafnaðar leifar af hárvörum á áhrifaríkan hátt. Formúlan hreinsar hárið án þess að skilja það eftir þungt og hjálpar því að líta út fyrir að vera ferskt, mjúkt og glansandi. Hentar flestum hárgerðum og til reglulegrar notkunar.
250ml
THE MIRACLE YOU LOVE, NOW IN NEON!
Introducing Limited Edition NEON DUOTONE MIRACLE HAIR TREATMENT, a
hypnotic collision of neon, inspired by retro-futurism, pop-art duotones
and the high-voltage visual language of the 80s. Photographed by ELEVEN
Australia Creative Director, Andrew O'Toole, the visuals are bold, energetic
and unmistakably ELEVEN Australia.
FREE NEON YELLOW STYLING COMB: Every NEON DUOTONE MIRACLE HAIR
TREATMENT comes with an exclusive Neon Yellow Carbon Fibre Wide Tooth
Comb, creating the ultimate duotone duo
NEON DUOTONE MIRACLE HAIR TREATMENT is a leave in treatment that
delivers 11 benefits your hair will LOVE:
1. Add shine, smoothness and softness
2. Control frizz & flyaways
3. Moisturise
4. Strengthen fragile hair
5. Prevent split ends
6. Detangle & create manageability
7. Protect against heat styling
8. Enhance natural body
9. Repair dry damaged hair
10. Protect hair colour with UVA & UVB filters
Gjafasett fyrir ljóshærða
Eleven Australia gjafasett með sjampói, Keep My Colour meðferð og Miracle Treatment spreyi, allt í fallegri snyrtitösku💛
