{"product_id":"hh-simonsen-airbond-dryer-black-harblasari","title":"HH Simonsen AirBond Dryer Black Hárblásari","description":"\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eHárgreiðslustofuárangur – heima hjá þér.\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eUpplifðu nýja vídd í hárþurrkun með AirBond-hárblásaranum. Hann sameinar kraftmikla frammistöðu, snjalla tækni og létta, vinnuvistvæna hönnun sem tryggir hraða þurrkun og fagmannlega mótun – á hverjum degi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eÖflugur og einstaklega hraðvirkur\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eHáþróaður stafrænn mótor nær allt að 110.000 snúningum á mínútu og myndar kraftmikið, vel stýrt loftflæði sem styttir þurrkunartímann verulega. Hágæða japanskar kúlulegur tryggja langan endingartíma, mjúka virkni og lágt hljóðstig – jafnvel á mesta hraða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eSnjöll mótun\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eAirBond-hárblásarinn er hannaður til að gera mótun hársins eins einfalda og mögulegt er. Þegar dreifarinn er festur á velur hárblásarinn sjálfkrafa kjörstillingar fyrir hita og hraða. Þegar dreifarinn er tekinn af fer hárblásarinn aftur í þær stillingar sem síðast voru notaðar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eVeldu á milli:\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul class=\"ul1\"\u003e\n\u003cli class=\"li1\"\u003e3 hraðastillinga\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"li1\"\u003e3 hitastillinga (60°C, 90°C og 120°C)\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"li1\"\u003eCold Shot-kælistillingar sem hjálpar til við að festa greiðsluna\u003c\/li\u003e\n\u003cli class=\"li1\"\u003eSnjalls LED-skjás sem auðveldar val á hita og hraða\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eHáþróuð hitastillitækni með gleri viðheldur jöfnu hitastigi loftsins í gegnum allt þurrkunar- og mótunarferlið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eHeilbrigðara og glansmeira hár\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eEinstök Air Ionic Bonding-tækni HH Simonsen hjálpar til við að draga úr úfnu hári með því að koma jafnvægi á neikvæðar og jákvæðar jónir. Hárið verður sléttara, glansmeira og auðveldara í meðhöndlun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eHannaður með þægindi í huga\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eAirBond-hárblásarinn vegur aðeins 382 g og er með fullkomlega jafnvægisstillta, vinnuvistvæna hönnun sem gerir hann þægilegan í notkun – jafnvel þegar verið er að móta hárið í lengri tíma. Þriggja metra löng snúra í faglegum gæðum veitir hámarks sveigjanleika og hreyfifrelsi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eEinfalt viðhald\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eTvöfalt síukerfi ver mótorinn fyrir hári og ryki og hjálpar þannig til við að lengja endingartíma hans. Segulfesting á aftari hlífinni gerir þrifin fljótleg og einföld. Innbyggt sjálfvirkt hreinsikerfi fer í gang eftir sex klukkustunda notkun til að viðhalda bestu mögulegu afköstum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eSjáðu hreinsikerfið í notkun:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca href=\"https:\/\/youtu.be\/lS1a2RE7KpM\"\u003e\u003cspan class=\"s2\"\u003ehttps:\/\/youtu.be\/lS1a2RE7KpM\u003c\/span\u003e\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cb\u003eLoftaflfræðilega hönnuð fylgihlutastykki\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eMeðfylgjandi nákvæmnisstútar og dreifari eru loftaflfræðilega hönnuð til að hámarka loftflæðið, stytta þurrkunartímann og veita meiri nákvæmni við mótun. Tvöfaldir veggir stútanna tryggja að þeir haldist kaldir við snertingu meðan á notkun stendur og segulfestingarnar gera þér kleift að skipta á milli fylgihluta á fljótlegan og einfaldan hátt.\u003c\/p\u003e","brand":"HH Simonsen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67613025566869,"sku":null,"price":49590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0782\/2904\/5397\/files\/2026facebook1080x1080_24_2048x_e19e3a6d-189a-4cdf-b935-e485d98f6c1b.png?v=1790916469","url":"https:\/\/osterby.is\/products\/hh-simonsen-airbond-dryer-black-harblasari","provider":"Österby","version":"1.0","type":"link"}