82 vörur
Raða eftir:
82 vörur
Fyrirbyggjandi herrrasjampó sem nota má daglega fyrir veikt hár og viðkvæmt fyrir þynningu. Styrkir hárið og hreinsar á mildan hátt hársvörð, hár og skegg. Hárið verður mýkra og sterkara þökk sé rakagefandi eiginleikum. Gefur hárinu þykkt og hreinsar umframolíur ásamt kælandi tilfinningu.
- Ginger Root/Engiferrót hefur verndandi áhrif gegn utanaðkomandi skaðvöldum.
- Creatine/ Kreatín endurbyggir og styrkir hárið innanfrá, bætir eiginleika þess og verndar það gegn hitaskemmdum og útfjólublárri geislun.
Viðgerðalína fyrir skemmt hár
Leave-in – Shine – Repairing – Seals Split Ends
Öflug glans viðgerðarolía fyrir skemmt hár og allar hárgerðir sem skortir heilbrigði og glans.
✔ Aukinn glans
✔ Leave In
✔ Viðgerð
✔ Hitavörn
✔ Innsiglar klofna hárenda
✔ Hemur frizz
92% minna af klofnum hárendum*
4x glansandi hár*
99% sterkara hár*
*Instrumental test
30ml
Repairing – Strengthening – Remove Calcium – Damaged Hair
Létt lúxus leave-in hárserum sem lagar skemmt hár innan frá fyrir allar hárgerðir sem þarfnast viðgerðar. Vinnur gegn því að hárið brotni ásamt að hemja frizz og vernda hárið gegn hitatækjum. Gefur fallegan glans og sterkara hár.
Skemmt hár sogar þrisvar sinnum meira kalsíum úr vatninu en heilbright hár, sem
getur leitt til uppsöfnunar kalsíums sem sést bæði inni í hárinu og á hártrefjunum sjálfum. Kérastase Sérum Filler Fondamental hefur tvöfalda virkni: létt og mild áferð þess innsiglar hártrefjarnar og ver þannig yfirborð hársins um leið og trefjarnar fá aukna fyllingu og styrk.
- Gefur hárinu raka
- Djúpnærir
- Kemur í veg fyrir frizz
- Hárið verður mýkra og sléttara
- Veitir hitavörn að 230°C
90ml
Bonding Anti-Breakage Filler Hair Mask
Anti-breakage – Repairing – Moisture – Strengthen
Djúpnæringarmaski sem er hannaður til að laga og styrkja skemmt hár, vernda gegn brotni, gera hárið sléttara og glansmeira.Hann fjarlægir kalsíumupphleðslu (calcium buildup), sem oft veldur því að hárið verður stíft, matt og brothætt.
Maskinn vinnur bæði að innan og utan: hann endurbyggir innri uppbyggingu hársins (keratín-tengi) og ytra hárstráið til að hjálpa því að verða mjúkt og fá glans.
Bonding Advanced Repairing Conditioner
Repairing – Softness – Strengthening – Damaged Hair
Einstaklega létt viðgerðahárnæringin sem gerir við hárið og hreinsar uppsafnað kalsíum úr öllum gerðum af skemmdu hári. Hún vinnur að því að endurheimta upprunalegan teygjanleika hársins og styrkir hártrefjarnar. Rakinn smýgur samstundis inn í hárið og ofunnið eða aflitað hár endurheimtir styrk sinn.
- Hárið verður samstundis meðfærilegra
- Stífni í hárinu minnkar
- Hárið verður mjúkt, slétt og glansandi
Bonding Advanced Repairing Shampoo
Repairing – Strengthening – Remove Calcium – Damaged Hair
Öflugt viðgerðasjampó fyrir skemmt hár. Hefur tvöfalda virkni. Það vinnur á móti uppsöfnuðu kalsíum sem ræðst á viðkvæmt eða aflitað hár og gerir hárið lint og líflaust. Það endurbyggir einnig keratíntengslin í hárinu og vinnur þannig að auknum styrk að innan. Hárið verður mjúkt og viðráðanlegt og fær aukinn gljáa og líf.
- Hreinsar varlega hár og hársvörð
- Styrkir hárið
- Hjálpar til við að minnka hárbrot og dauft yfirbragð hársins.
- Gerir við hárið frá innsta kjarna þess
- Súlfat Free
Forsjampó
Hair Treatment - Pre Shampoo - Repairing - Antibreakage - Strengthen - Remove Calcium
Umbreyting í einni notkun – snýr við sýnilegum skemmdum.
Skref 1 - ACTIVATE REPAIR
Þetta fyrir-sjampó vinnur djúpt og lagar hárskemmdir á öllum stigum fyrir allar hárgerðir. Með því að bera formeðferðina í blautt hár áður en sjampóið er notað getum við hámarkað að virku innihaldsefnin komist inní hárið fyrir öfluga viðgerð.
Formúlan inniheldur faglegan styrk af hreinni 3% sítrónusýru og 5% glýsín sem virka bæði á ytra og innra lagi hársins með tíþvætta virkni til að afkalka hárið og hjálpa til við að gera við viðvarandi skemmdir verulega. Formúlan smýgur djúpt inn í hárið til að losa það við ofskömmtun kalsíums, snúa við stífleika og daufleika, og hjálpar um leið til við að endurtengja slitin tengsl milli keratínkeðja.
Fyrir vikið verður hárið sterkara, heilbrigðara og glansandi - eins og það hafi verið endurnýjað.
Forsjampóið er gel formúla og freyðir ekki og er ekki ætlað til að koma í staðinn fyrir venjulegt sjampó.
NOTKUN
Skref 1 - ACTIVATE REPAIR
Berið ríkulega í lengd hársins og nuddið í gegnum hárið.
Látið bíða í 5. mín. Ekki skola.
Forsjampóið er gel formúla og freyðir ekki.
Skref 2 - CLEANSE & REPAIR
Eftir 5.mín berið beint yfir Première Bain / sjampó, nuddið vel fyrir ríkulega froðu og skolið.
Skref 3 - CONDITION & REPAIR
Fylgdu eftir með Première Fondant / næringunni eða hármaskanum.
Skref 4 - PROTECT & REPAIR
Berið Repairing Anti-Frizz Filler Serumið í lengd hársins í handklæðaþerrað hárið til að vernda það gegn skemmdum og hita allt að 230°C*, blásið hárið.
Til að klára Première rútínuna skaltu setja 1- 2 dropa af Intensive Shine Repairing Oil í rakt eða þurrt hár til að næra lengdina og klofna hárenda.
* Hámarkaðu árangur þinn með krafti lagskiptingar “ Layering Tækni”
Athugið: Þetta forsjampó notast ekki eitt og sér heldur í meðferðaplani með Premiére sjampó.
Premiere línan er hönnuð til að laga skemmt hár og gera það heilbrigt & sterkt.
- Première Bain Décalcifiant Réparateur Repairing Shampoo 80ml
- Premiére Repairing Pre-Shampoo Treatment 45ml
Róandi meðferðaskot fyrir viðkvæman hársvörð.
Öflug 4 vikna meðferð sem róar, verndar og endurheimtir jafnvægi hársvarðarins.
Róandi og endurnærandi meðferð sem veitir tafarlausa bót við óþægindum eins og kláða, sviða og roða.
Hún gefur raka og næringu, endurheimtir teygjanleika og gæði hársvarðarins og býr til heilbrigðara umhverfi fyrir sterkari hárvöxt.
Helstu ávinningar
- Veitir tafarlausa léttir frá kláða, sviða og ertingu.
- Endurheimtir teygjanleika, gæði og jafnvægi hársvarðar
- Stuðlar að endurnýjun, raka og náttúrulegri vörn húðarinnar
- Ver gegn oxunarálagi og sindurefnum
- Skapar kjöraðstæður fyrir sterkari og heilbrigðari hárvöxt.
- Hárið verður létt, mjúkt, glansandi og sveigjanlegt
- Létt og skilur hárið ekki eftir fitugt.
Fullkomin 4 vikna kúr þegar hársvörðurinn bregst illa við streitu, árstíðabreytingum eða eftir mikla mótun og hitameðferðir.
Viðkvæmur hársvörður getur verið merki um streitu, loftslagsbreytingar, mengun, of mikla hitanotkun eða efnaálag.
Cure Apaisante hjálpar til við að endurheimta jafnvægi húðarinnar og styrkir náttúrulegt varnarlag hennar, svo hárið vaxi í heilbrigðara og næringarríkara umhverfi.
Formúlan byggir á sameiningu náttúrunnar og vísindanna: Rhamnose sem styrkir frumur, Moringa og E-vítamín sem verja gegn oxunarálagi – og mildri, rakagefandi áferð sem róar strax við fyrstu notkun.
10 stk x 6ml
Öflugur meðferðakúr við hárlosi frá rótinni.
Ef þú finnur fyrir miklu hárlosi þá er þessi einstaki meðferðakúr að henta þér þar sem hann vinnur fyrst og fremst í kjarnanum sem er hársvörðurinn til að styrkja hárið og festu þess svo það falli síður og hjálpa til við að örva og styrkja hársvörðinn til að tryggja betri festu hársins og draga úr hárlosi.
Inniheldur virk efni sem styðja við náttúrulega virkni hársins.
Formúlan vinnur bæði á yfirborði og í djúpum lögum húðarinnar til að örva, vernda og styrkja.
Helstu ávinningar:
-
Klínískt sannað að hjálpa til við að viðhalda hárþéttleika og draga úr tíðni tímabundins hárloss*
- Hárið verður þykkara, sterkara og með meiri fyllingu
- Bætir glans, mýkt og hreyfingu hársins
- Skilur ekki eftir sig fituga eða þunga áferð
Key ingredients:
-
Aminexil 1.5%
Rhamnose
Ginger Root Extract
Edelweiss Native Cells
Eingöngu fyrir þig.
Fjórar smærri lausnir sem henta vel á ferðalögum til að vinna á þreytu, spennu, þurri húð og sumarálagi.
