22 vörur
Raða eftir:
22 vörur
Silver Shampoo er sérhannað fyrir ljóst og grátt hár. Inniheldur fjólublá litarefni sem draga úr óæskilegum gulum og appelsínugulum tónum. Sjampóið er milt og gefur góðan raka og næringu. Það er ríkt af andoxunarefnum sem verja og næra hárið.
Það hentar sérstaklega vel til að:
Viðhalda ljósum og gráum lit
Kæla ljósa tóna og jafna hár með strípur
Draga úr gylltum og appelsínugulum tónum
Styrkja þurrt, skemmt eða efnameðhöndlað hár
Moisturizing Bi-Phase er rakasprey veitir hárinu djúpa næringu og silkimýkt án þess að þyngja það. Spreyið inniheldur vínberjakjarnolíu og hýalúrónsýru sem styrkja hárið og gefa því raka og glans. Fullkomið sprey til að auðvelda greiðslu og bæta áferð hársins.
Hentar sérstaklega vel fyrir:
Þurrt hár
Úfið hár
Líflaust hár
Venjulegt hár
Krullað hár
Börn
Keratin Instant Repair gerir samstundis við hárið. Inniheldur B6, B12 og mjólkursýru sem nærir hársekkina og prótein sem endurbyggir og styrkir hárið. Hármeðferðin veitir gljáa, heldur reyttu hári í skefjum, styrkir og eykur sveigjanleika. Þarf ekki að skola úr, verndar gegn útfjólubláum geislum, auðveldar sléttun hársins.
Volume Mask er fyrir fíngert hár. Maskinn styrkir hárið, verndar hársvörðinn og dregur úr fitumyndun.
Hármaskinn inniheldur Sym Control Scalp-efni og hentar vel fyrir feitt hár. SynControl Scalp dregur úr fitumyndun í hársverði sem er ein helsta orsök þess að fíngert hár missir þykkt.
Hentar sérstaklega fyrir:
Fíngert hár
Viðkvæmt hár
Hár sem hefur tilhneigingu til að verða feitt
Salt Shampoo er frískandi saltsjampó fyrir fíngert hár. Það þykkir hárið og gefur fyllingu og gljáa á sama tíma og það djúphreinsar án þess að þyngja hárið.
Sjampóið sameinar kraft sjávarssalts og SymControl Scalp-efnis sem fjarlægir umfram fitu og verndar hársvörðinn.
Hentar vel fyrir:
Fíngert hár
Viðkvæmt hár
Hár sem hefur tilhneigingu til að verða feitt
Volume Shampoo gefur fíngerðu hári aukna fyllingu frá rótum á sama tíma og það djúphreinsar. Sjampóið inniheldur SymControl Scalp-efni sem hentar sérstaklega fyrir feitt hár og viðkvæman hársvörð.
Efnið dregur úr fitumyndun í hársverði, sem oft veldur rúmmálstapi í fíngerðu hári, og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu jafnvægi. Hentar sérstaklega fyrir fíngert hár, veikt hár og hár með tilhneigingu til að verða feitt.
Protein Concentrate er próteinþykkni úr soja og kollageni. Markmið með notkun próteina er að skapa jafnvægi á milli raka og próteins. Þegar hárið er mjög rakt verður það of mjúkt og enginn styrkur til að halda krullum.
Gott fyrir:
Brothætt hár
Þegar hárið er skemmt eftir efnameðferðir eða notkun hitatækja
Þegar hárið er viðkvæmt eða fíngert
Þegar teygjanleiki hársins er lítill
Þegar hárið er mjúkt eða gúmmíkennt
Þegar hárið er blautt
Þegar krullur halda ekki lögun
Til að endurheimta þéttleika sem hefur tapast
Silver Mask djúpnærandi hármaski er sérstaklega þróaður fyrir ljóst og grátt hár. Hann styrkir þurrt, skemmt eða efnameðhöndlað hár. Maskinn inniheldur fjólublá litarefni sem vinna gegn óæskilegum gulum tónum, jafnar ljósa tóna og gefur raka og næringu. Hann er ríkur af andoxunarefnum sem verja og næra hárið.
Maskinn hentar sérstaklega vel til að:
Viðhalda ljósum og gráum lit
Draga úr gylltum og appelsínugulum tónum
Kæla ljósa tóna og jafna strípur
Styrkja og næra skemmt eða þurrt hár
Eingöngu fyrir þig.
Fjórar smærri lausnir sem henta vel á ferðalögum til að vinna á þreytu, spennu, þurri húð og sumarálagi.
